VMA88
Þínir flokkar
18.05.2008 17:50:34 / VMA88

Takk fyrir frábæran dag

Það eru komnar nokkrar myndir inn á myndasafnið.   Ef þið hafið myndir til að láta inn þá getið þið sent þær á okkur, Hemma og Balla.

Annars bara kærar þakkir fyrir frábæran dag og vonandi hittumst við öll að 5 árum liðnum.


Kv.
Fráfarandi stýrihópurinn

» 9 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 21:29:41 / VMA88

Skráningu lokið - mjög góð þátttaka

Þá er morgundagurinn að renna upp, skráning hefur verið með ágætum og hafa um 30 hausar skráð sig í " rútubílarallýið " og síðan verðum við tæplega 40 um kvöldið. 

Lykilatriðið er síðan bara það að mæta með góða skapið, því að þetta verður aldrei skemmtilegra en maður stuðlar að sjálfur.  Muna svo bara eftir útivistar- og sundfötum í austurferðina.


Bara rétt að árétta að þar sem vökvaneysla hvers og eins er mismunandi þá verður hver og einn að meta eigin þörf og birgja sig upp í samræmi við það, jafnt yfir daginn sem um kvöldið.  Ekki er krafist " galaklæðnaðar " í samkvæmishaldi þessu.


Varðandi þá sem ætla bara að koma um kvöldið þá stefnum við að því að verða komin upp í Skíðahótel um kl. 20:00.  Nánara skipulag um smölun þangað liggur ekki fyrir og eru því þeir sem koma ekki um daginn að koma sér í símasamband við hópinn þegar líður að ferðinni uppeftir til að fá að vita hvar þeir geta verið hirtir upp.  Td. Hemmi GSM 893 0056, Hanna Dóra GSM 847 5452, Dóra Skúla. GSM 866 2509.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 15:08:18 / VMA88

Lokatilkynning - helstu upplýsingar

Góðir hálsar

 

Þá liggur nú loka skipulagið fyrir og geta menn, og konur, farið að telja niður því 17. maí nálgast óðfluga.   Það sem vert er að hafa í huga er,

 

„Óvissuferð“ með miklum upplýsingum

Hafist skal handa með því að mæta við okkur gömlu húsakynni, Verkmenntaskólann á Akureyri, kl. 12:00 á hádegi.  Þar munum við heilsa uppá þá stjórnendur sem eru við stýrið í dag og taka smá „nostalgíu“ í okkar gamla rými.  Kl. 13:00 tökum við smá rallý til austurs og endum síðla dags í Jarðböðunum í Mývatnssveit.  Frekari upplýsingar um ferðatilhögun er ekkert með að gera.  Í þessa ferð þarf fólk að vera í fatnaði til að geta verið utandyra,  vera með sundfatnað og hafa síðan meðferðis þau drykkjarföng sem hver og einn telur þörf á.   Léttar veitingar verða bornar fram um miðjan daginn.

Áætluð heimkoma er um kl. 18:00.

 

Veisluhöld um kvöldið

            Þá munum við halda uppí 500 metra og halda veisluhöldum áfram í Skíðahótelinu.  Á milli kl. 19:30 – 20:00 mun rúta smala liðinu saman um bæinn og er áætluð koma upp eftir kl. 20:00.  Nánari útfærsla á „smöluninni“ verður ákveðin síðar.  Þar verður etið, drukkið gamansögur sagðar og jafnvel verður grammafónn tekinn fram og tónlist leikin af vínil.  Séu menn með skemmtiatriði þá endilega hafið þau með í farteskinu.  Heimferð er ekki skipulögð og það verður undir hverjum og einum komið að koma sér aftur heim, gangandi, rúllandi eða þá með þeim hætti sem hver velur.

            Hver og einn mætir með þau drykkjarföng sem hann telur henta sér og sínum á samkomu sem þessari og í návist þessa fólks.

            Áætluð lok er um kl. 0?:30    ( Þol manna á okkar aldri er víst mismunandi )

 

Gjöf til skólans frá 20 ára stúdentum

            Okkur langar að færa skólanum smá gjöf í tilefni þessara tímamóta og í samráði við skólastjórnendur hyggjumst við vera stofnendur að sjóð sem gæti nýst stjórnendum skólans til hinna ýmsu verka, s.s. tækjakaupa, styrkveitinga til nemenda og einnig til að leggja ýmsum málefnum lið.  Þetta er allt saman mjög ómótað enn og ef að einhver hefur hugmynd að nafni á sjóðnum þá endilega látið okkur vita.  Við tókum okkur það leyfi að leggja 1.000 króna viðbótargjald á þátttökugjaldið hjá hverjum og einum sem ætlað er sem framlag í þessa gjöf. 

 

 

Aðkoma að útskrift frá VMA þann 24. maí 2008

            Nærveru fulltrúa okkar er óskað við útskrift og skólaslitin þann 24. maí nk. og hefur Hanna Dóra Markúsdóttir fallist á að mæta þar fyrir okkar hönd og lesa lýðnum pistilinn og þá einnig að færa skólanum gjöf okkar.

 

Skráningar og greiðslufyrirkomulag

            Þá er bara að skrá sig til þátttöku í þessi herlegheit og það gerið þið með því að senda tölvupóst til Hönnu Dóru, hdm@akmennt.is .  Endilega gerið það sem fyrst, og í síðasta lagi á næsta þriðjudagskvöld, 13. maí 2008.  Látið fylgja með í skráningunni hvort að þið verðið með allan daginn eða bara kvöldið.

            Allt kostar þetta nú eitthvað en þannig er nú bara lífið, það er ekkert gefið í dag.

            Rútubílarallý frá kl. 12:00 – 18:00     :                  6.000 kr.

( Aðgangseyrir í Jarðböðin er EKKI inni í þessari upphæð og þarf því hver og einn að hafa smá skotsilfur meðferðis í það )

            Veislan í Skíðahótelinu, með akstri uppeftir :      5.000 kr. (1.000 kr. vegna gjafarinnar)

            Heildarpakkinn er því  kr. 11.000

            Langbest væri að gera upp fyrirfram og þá skal lagt inn á reikning sem hefur verið stofnaður í tilefni þessa, 0302-13-2008, kt. 260368-5759.  Endilega setjið nafn ykkar sem skýringu á innlegginu.

 

            Meira höfum við nú ekki fram að færa í augnablikinu og vonumst nú bara til að hitta sem allra flesta við þetta tækifæri.

            Þessar upplýsingar verða settar inná bloggið okkar, http://vma88.blogcentral.is/ en endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst í langloku þessari.

 

Kveðja,

Dóra Skúla                    Hanna Dóra                 Hemmi                        Balli                       Binni


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 22:51:06 / VMA88

Erum farin að telja niður !

Jú, þá fer nú að styttast í herlegheitin, dagskráin er að mótast svo endilega takið daginn frá í þessi herlegheit því enginn verður svikinn af því .  

Laugardagurinn 17. maí, frá hádegi, og reiknið síðan með slatta af iðnaðarmönnum í vinnu hjá ykkur þann 18.

Kveðja, stýrihópurinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 22:19:34 / VMA88

Laugardagurinn 17 MAÍ

Svo getið þið verið óhrædd við að skrifa í gestabókina og endilega ef þið hafið skemmtilegar myndir úr bekkjapartíum, 5, 10 eða 15 ára stúdenta veislunum
þá sendið á motorgames@motorgames.eu og ég set þær inn.

Balli Innbæingur og man ekki stundinni lengur hvað bekkurinn minn hét 4?? Ég hlít að vera orðinn 20 ára stúdent!!!

Það er allavega komin ein mynd inn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 23:23:43 / VMA88

Hanna Dóra

:d já hún er fertug stúlkan á afmælisdegi þessa bloggs !!

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 23:13:54 / VMA88

20 ára stúdentar

Hérna mun koma dagskrá 20ára samkomunnar, hverjir mæta, hverja verður náð í o.s.frv.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 23:08:44 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Könnun
Ætlar þú að mæta?


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 3351